Í Gljúfurá er veitt með 2 stöngum sem alltaf eru seldar saman. Leyfð er veiði með flugu og maðki og hirða má 1 lax og 5 silunga á stöng á dag (ath. holl sem er hálfur-heill-hálfur má hirða 4 laxa og 20 silunga). Með veiðileyfum í Gljúfurá fylgir veiðileyfi fyrir 2 stangir í Hópinu fyrir landi Hólabaks. Sé veitt í Hópinu má ekki veiða nær ós Gljúfurár en 50 m. Í Hópinu má veiða með flugu, maðki og spún.
Veiðitími innan sólarhrings er frjáls en takmarkast við 12 klukkustundir. Veiði má hefja kl. 16:00 á komudegi og veiða má til kl. 13:00 á brottfarardegi. Eftir miðjan ágúst má hefja veiðar kl. 15:00 á komudegi.
Gestir mega mæta í veiðihús kl. 15:00 á komudegi og skulu yfirgefa veiðihús fyrir kl. 14:00 á brottfarardegi. Ef pöntuð eru þrif skulu gestir yfirgefa veiðihúsið kl. 13:30.
Veiðifólk er hvatt til að ganga vel um veiðihús og umhverfi árinnar. Gæta þarf að því að loka hliðum þar sem við á.